15.9.2010 kl. 23:54
Benedikt Þór efstur á æfingu.
Benedikt Þór Jóhannsson kemur vel undan sumri því enginn stóðst honum snúning á skákæfingu kvöldsins er fram fór í nýuppgerðum sal stéttarfélagsins Framsýn á Húsavík nú í kvöld.
Benedikt Þór vann alla sína andstæðinga 6 að tölu. Tefldar voru skákir með 10 mín umhugsunartíma á mann.
Úrslit kvöldsins:
1. Benedikt Þór Jóhannsson 6 vinn af 6 mögul.
2-3. Heimir Bessason 4
2-3. Hermann Aðalsteinsson 4
4. Hlynur Snær Viðarsson 2,5
5. Sigurbjörn Ásmundsson 2
6. Valur Heiðar Einarsson 1,5
7. Ingvar Björn Guðlaugsson 1
Næsta skákæfing verður á Stórutjörnum að viku liðinni.
Á laugardaginn kl 13:00 verður 15 mín mót Goðans haldið á Laugum. Félagsmenn eru hvattir til að taka þátt í því. H.A.