Einar Hjalti efstur fyrir lokaumferðina

FIDE-meistarinn Einar Hjalti Jensson (2305) er efstur fyrir lokaumferð Gagnaveitumótsins – Haustmóts TR. Í áttundu og næstsíðustu umferð, sem fram fór í gærkvöld, vann hann Sverri Örn Björnsson (2136). Einar hefur 7 vinninga. Jón Viktor Gunnarsson (2409) og Stefán Kristjánsson (2491) eru í 2.-3. sæti með 6,5 vinning. Jón vann Dag Ragnarsson (2040) en Stefán lagði nafna sinn Bergsson (2131).

2009-06-30 23.55.05

 

Í lokaumferðinni sem fram fer á föstudagkvöld mætast Jón Viktor og Stefán en Einar teflir við Oliver.

Mótstöflu flokksins má nálgast á Chess-Results.