Einar meðal efstu manna á Íslandsmótinu í atskák.

Sex skákmenn eru efstir og jafnir með 2,5 vinning að loknum þremur umferðum á Íslandsmótinu í atskák. Það eru stórmeistarinn Stefán Kristjánsson  (2473), alþjóðlegu meistararnir Arnar Gunnarsson (2441) og Bragi Þorfinnsson (2480), FIDE-meistarinn Einar Hjalti Jensson (2312) og Vigfús Ó. Vigfússon (1985) og Daði Ómarsson (2206).

myndaalb m 1 einar hjalti

 

Mótinu í dag verður framhaldið með umferðum 4-7.  Taflmennskan hefst kl. 13. Fjórir efstu skákmennirnir tefla svo áfram á morgun með útsláttarfyrirkomulagi.

 

 

 

Það er Skákdeild Fjölnis sem heldur mótið sem fram fer í Rimaskóla.