3.4.2012 kl. 11:31
Einar vann í 2 og 3. umferð. mætir Guðmundi í 4. umferð í kvöld.
Fimm skákmenn eru efstir og jafnir í áskorendaflokki með fullt hús
eftir þriðju umferð sem fram fór í dag. Það eru Lenka Ptácníková
(2289), Guðmundur Kjartansson (2357), Einar Hjalti Jensson (2245),
Haraldur Baldursson (1991) og Patrekur Maron Magnússon (1974).
Einar Hjalti vann Jón Úlfljótsson (1840) í 3. umferð í gær og í 2. umferð vann Einar Árna Guðbjörnsson (1727). Einar teflir við stigahæsta mann mótsins Guðmund Kjartansson (2357) í 4. umferð
Úrslit
þriðju umferðar má finna hér. Stöðu mótsins má finna hér.
Fjórða umferð fer fram í dag og hefst kl. 18. Pörun hennar má finna hér.
Eftirfarandi fjórar skákir verða sýndar beint í dag.
- Guðmundur – Einar Hjalti
- Haraldur – Lenka
- Patrekur – Magnús Magnússon
- Páll Sigurðsson – Einar Valdimarsson
