18.11.2009 kl. 23:15
Erlingur og Hermann efstir á æfingu.
Erlingur Þorsteinsson og Hermann Aðalsteinsson urðu efstir og jafnir á skákæfingu kvöldsins sem fram fór á Stórutjörnum í kvöld. Þeir fengu báðir 3,5 vinninga af 5 mögulegum og gerðu jafntefli sín á milli. Tefldar voru skákir með 10 mín umhugsunartíma á mann.
Úrslit urðu eftirfarandi:
1-2. Erlingur Þorsteinsson 3,5 af 5 mögul.
1-2. Hermann Aðalsteinsson 3,5
3-4. Ármann Olgeirsson 3
3-4. Jóhann Sigurðsson 3
5-6. Sigurbjörn Ásmundsson 1
5-6. Ketill Tryggvason 1
Ketill og Jóhann fengu nýju Goða-bolina sýna afhenta í kvöld.
Næsta skákæfing verður á Húsavík að viku liðinni. H.A.
