25.9.2011 kl. 21:10
Haustmót TR. Tómas vann Davíð Kjartanss í fyrstu umferð.
Haustmót TR hófst í dag í Reykjavík. Tveir keppendur frá Goðanum taka þátt í mótinu og unnu þeir báðir sínar skákir. Tómas Björnsson tefldi slavneska vörn gegn hinum öfluga liðsmanni Víkingaklúbbsins, Davíð Kjartanssyni. Eftir jafnt tafl út úr byrjuninni fór Tómas að finna smáveilur í stöðu hvíts og gekk á lagið. Skærurnar leiddu að lokum til þess að Tómas vann skiptamun og hvítur gafst upp í 42 leik. Þessi sigur var dæmigeður fyrir Tómas sem er alltaf stóhættulegur þegar hann nær að hrifsa til sín frumkvæðið. Tómas verður með hvítt gegn Þorvarði Fannari Ólafssyni í annari umferð sem verður tefld á miðvikudag.
Tómas Björnsson.
Hinn nýi liðsmaður Goðans, Stephen Jablon, (USA) atti kappi við hinn margreynda skákmann, Sigurjón Haraldsson, með hvítu. Stephen tefldi hvasst afbrigði gegn hollenskri vörn Sigurjóns, var alltaf skrefinu á undan og svo fór að að lokum að svartur var mátaður í 32. leik. Sannfærandi innreið Stephen í íslenskt skáklíf. Stephen verður með svart gegn Atla Antonssyni (1862) í annari umferð. JÞ.
