4.2.2010 kl. 09:54
Heimir og Hermann efstir á æfingu.
Heimir Bessason og Hermann Aðalsteinsson urðu efstir og jafnir með 5 vinninga á skákæfingu sem fram fór á Húsavík í gærkvöldi. Þeir fengu báðir 5 vinninga af 6 mögulegum.
Tefldar voru skákir með 10 mín umhugsunartíma á mann.
Úrslit urðu eftirfarandi:
1-2. Heimir Bessason 5 vinn af 6 mögul.
1-2. Hermann Aðalsteinsson 5
3. Sigurbjörn Ásmundsson 4
4. Sigurjón Benediktsson 3,5
5. Snorri Hallgrímsson 2,5
6. Hlynur Snær Viðarsson 1
7. Valur Heiðar Einarsson 0
Næsta skákæfing verður á Laugum að viku liðinni. H.A.
