29.1.2014 kl. 00:04
Heimir Páll sigraði í eldri flokki og Stefán Orri í yngri flokki á æfingu hjá GM Helli.
Heimir Páll Ragnarsson sigraði í eldri flokki á GM-Hellisæfingu sem fram fór þann 27. janúar sl. Heimir Páll fékk 4,5v í fimm skákum og landaði sigrinum með jafntefli við Róbert Luu í síðustu umferð og vann þar með sína fyrstu æfingu á þessum vetri. Annar varð Óskar Víkingur Davíðsson með 4v og þriðji varð Róbert Luu með 3,5 vinninga og þar með í fyrst sinn í verðlaunasæti í eldri flokknum á æfingunum.
Stefán Orri Davíðsson sigraði með fullu húsi 5v í fimm skákum í yngri flokki. Stefán Orri fer því eins og jojo milli eldri og yngri flokks þessa dagana. Annar varð Brynjar Haraldsson með 4v og 13 stig og þriðji var Egill Úlfarsson með 4v og 12 stig.
Eftirtaldir tóku þátt í æfingunni: Heimir Páll Ragnarsson, Óskar Víkingur Davíðsson, Róbert Luu, Jón Otti Sigurjónsson, Axel Óli Sigurjónsson,Birgir Ívarsson, Halldór Atli Kristjánsson, Alec Elías Sigurðarson, Oddur Þór Unnsteinsson, Freyja Dögg Deleon, David Deleon, Sindri Snær Kristófersson, Baltasar Máni Wedholm, Stefán Orri Davíðsson, Brynjar Haraldsson, Egill Úlfarsson, Adam Omarsson, Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Þórður Hólm Hálfdánarson, Arnar Jónsson, Birgir Logi Steinþórsson, Sævar Breki Snorrason, Alexander Már Bjarnþórsson, Ívar Andri Hannesson, Aron Kristinn Jónsson og Gabríel Sær Bjarnþórsson
Næsta æfing í Mjóddinni verður svo mánudaginn 27. janúar og hefst kl. 17.15. Þessi æfing er fyrir félagsmenn í Skákfélaginu GM Helli þar sem unnið verður í verkefnahópum að mismunandi æfingum ásamt því að tefla. Æfingarnar eru haldnar í Álfabakka 14a í Mjóddinni, gengið inn á milli Subway og Föken Júlíu og salurinn er á þriðju hæð.
