30.10.2013 kl. 21:35
Hilmir Freyr unglingameistari GM Hellis
Vignir Vatnar Stefánsson sigraði á jöfnu og skemmtilegu unglingameistaramóti GM Hellis (suðursvæði) sem lauk á þriðjudag. Vignir Vatnar fékk 6½ vinning í sjö skákum og það var Veronika Steinunn Magnúsdóttir sem náði jafntefli. Aðrar skákir vann Vignir Vatnar og gilti þá einu þótt hann stæði einhverju sinni höllum fæti um tíma; þá landaði hann sigri með keppnishörkunni og vann að lokum sanngjarnan sigur á mótinu. Annar varð Hilmir Freyr Heimisson með 6 vinninga, sem er sami vinningafjöldi og dugði honum til sigurs í mótinu í fyrra.
Hilmir Freyr, sem býr á Patreksfirði, gerði sér sérstaka ferð í bæinn til að taka þátt í mótinu og verja titilinn sem hann vann í fyrra. Það tókst, því Hilmir Freyr var efstur félagsmanna í GM Helli og er því unglingameistari félagsins. Þriðji varð Dawid Kolka með 5 vinninga. Hann vann mótið fyrir tveimur árum en var í skólaferðalagi í fyrra og átti þess ekki kost að verja titilinn þá. Núna vantaði herslumuninn til að ná lengra þótt vissulega hafi tækifæri boðist til þess í mótinu.
Vignir Vatnar og Hilmir Freyr voru einnig í tveimur efstu sætum í flokki 12 ára og yngri en þar náði Mikhael Kravchuk þriðja sætinu eftir mikinn stigaútreikning þar sem hann var hálfu stigi hærri en Óskar Víkingur Davíðsson í öðrum stigaútreikningi.
Hjörvar Steinn Grétarsson, heilsaði upp á keppendur í fimmtu og sjöttu umferð og tók við viðurkenningu frá félaginu. Hjörvar Steinn er líka sá sem oftast hefur orðið unglingameistari félagsins, fimm sinnum. Á þessu móti voru hins vegar keppendur sem eiga möguleika á að ná þeim árangri. Það fór síðan vel á því að Hjörvar Steinn léki fyrsta leiknum fyrir lærisvein sinn Vigni Vatnar í skák við Mikhael Kravchuk í 6. umferð. Sennilega er Hjörvar Steinn samt vanari því að aðrir fái það hlutverk að leika fyrsta leiknum fyrir hann.
Myndir frá mótinu má skoða hér
Mótshaldið tókst vel og allir keppendur sem hófu mótið luku því, sem er ekki sjálfgefið í tveggja daga móti, með 20 mínútur í umhugsunartíma og marga unga þátttakendur. Allir stóðu þeir sig með prýði og tefldu af áhuga og þá ekki sísti yngstu keppendurnir Adam Omarsson sem er fæddur 2007 og Kristófer Jökull Jóhannsson sem er fæddur 2008.
Lokastaðan:
1. Vignir Vatnar Stefánsson 6½ v./7
2. Hilmir Freyr Heimisson 6 v.
3. Dawid Kolka 5 v.
4. Veronika Steinunn Magnúsdóttir 4½ v.
5. Birgir Ívarsson 4½ v.
6. Mikhael Kravchuk 4 v. (24½; 28)
7. Óskar Víkingur Davíðsson 4 v. (24½; 27½)
8. Alec Elías Sigurðarson 4 v. (23; 26½)
9. Stefán Orri Davíðsson 4 v. (23; 26)
10. Halldór Atli Kristjánsson 4 v. (20)
11. Róbert Luu 4 v. (18)
12. Heimir Páll Ragnarsson 3½ v.
13. Oddur Þór Unnsteinsson 3 v.
14. Sindri Snær Kristófersson 3 v.
15. Óttar Örn Bergmann Sigfússon 3 v.
16. Ívar Andri Hannesson 3 v.
17. Adam Omarsson 3 v.
18. Brynjar Haraldsson 2 v.
19. Egill Úlfarsson 2 v.
20. Kristófer Eggert Arnarson 2 v.
21. Kristófer Jökull Jóhannsson 1 v.
