10.12.2010 kl. 11:04
Hraðskákmót Goðans 2010 verður 27. desember
Hraðskákmót Goðans 2010 verður haldið mánudagskvöldið 27 desember á Húsavík.
Mótið fer fram í Framsýnar-salnum að Garðarsbraut 26 og hefst stundvíslega kl 20:00.
Reiknað er með því að mótslok verði um kl 23:00.
Tefldar verða 11 umferðir eftir monrad-kerfi. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin, auk farandsbikars fyrir sigurvegarann. Núverandi hraðskákmeistari Goðans er Jakob Sævar Sigurðsson. Einnig verða veitt verðlaun fyrir þrjá efstu í yngri flokki (16 ára og yngri)
Þátttökugjald er 500 krónur fyrir fullorna en 250 krónur fyrir 16 ára og yngri.
Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig til keppni hjá formanni lyngbrekka@magnavik.is eða í síma 4643187.
Mótið verður auglýst nánar þegar nær dregur.
