3.11.2013 kl. 21:00
Óliver, Jón Kristinn og Vignir meistarar Ágætu árangur okkar manna
Íslandsmóti yngri flokka í skák lauk á Akureyri í dag. Á Unglingameistaramóti Íslands (20 ára og yngri) reyndist stigahæsti keppandinn, Óliver Aron Jóhannsson, drýgstur á lokasprettinum. Keppendur voru átta talsins og tefldu innbyrðis, allir við alla. Óliver vann í morgun skákina við helsta keppinaut sinn, Örn Leó Jóhannesson; tók þá forystuna og lét hana ekki af hendi síðan. Hann fékk 6 vinninga úr 7 skákum. Örn Leó varð annar og Jóhanna Björg Jóhannesdóttir GM-Helli varð í þriðja sæti.
Teflt var í einum flokki um Íslandsmeistaratitil 15 ára og yngri og 13 ára og yngri. Þar tók hinn bráðefnilegi Vignir Vatnar Stefánsson úr TR forystuna snemma móts og virtist ætla að vinna báða titlana sem í boði voru. Hann var efstur fyrir síðustu umferð en mátti þá lúta í lægra haldi fyrir SA-manninum Óliver Ísak Ólasyni, en um 700 stig skilja þá félaga að á stigalistanum. Þetta voru tvímælalaust óvæntustu úrslit mótsins og skiptu sköpum í toppbaráttunni. Við tapið hrökk Vignir niður í annað sætið í 15 ára flokknum en sigur hans í 13 ára flokknum var ekki í hættu. Hinsvegar naut félagi Ólivers, Jón Kristinn Þorgeirsson góðs af þessum úrslitum og skaust upp fyrir Vigni Vatnar.
Heimir Páll Ragnarsson varð efstur okkar keppenda á mótinu en Heimir hafnaði í 8-15. sæti með 5 vinninga. Eyþór Kári Ingólfsson, Bjarni Jón Kristjánsson og Ari Rúnar Gunnarsson fengu einnig 5 vinninga. Jón Aðalsteinn Hermannsson og Jakub Pitor Statkiewicz urðu í 16-17 sæti með 4,5 vinninga og Helgi James Þórarinsson fékk 4 vinninga. Björn Gunnar Jónsson og Stefán Bogi Aðalsteinsson fengu 3 vinninga og Kristján Davíð Björsson krækti í 2 vinninga.
15 ára og yngri:
Jón Kristinn Þorgeirsson, SA 8
Vignir Vatnar Stefánsson, TR 7,5
Símon Þórhallsson, SA 7
13. ára og yngri:
Vignir Vatnar Stefánsson, TR 7,5
Björn Hólm Birkisson, TR 6
Óliver Ísak Ólason, SA 6