30.1.2009 kl. 23:58
Skák í skólana. Fyrri dagur.
Björn Þorfinnson forseti skáksambands Íslands mætti galvaskur í Borgarhólsskóla á Húsavík kl 10:00 í morgun. Björn forseti fór og leit inn í valda bekki í skólanum ásamt Halldóri Valdimarssyni skólastjóra Borgarhólsskóla og Hermanni formanni skákfélagins Goðans.
Hann færði öllum nemendum í 3. bekk bókina Skák og mát að gjöf frá skáksambandinu og síðan var efnt til fjölteflis við alla þá nemendur sem vildu. 30 krakkar mættu í fjölteflið og vann Björn sigur í öllum skákunum nema að Benedikt Þór Jóhannsson gerði jafnteli við Björn. Fram að þessu hafði Björn unnið síðustu 230 skákir í þeim skólum sem hann hefur heimsótt að undanförnu.
Eftir hádegi var svo efnt til skákkennslu í sal Framsýnar-stéttarfélags og þangað mættu 30 krakkar frá Húsavík, Mývatnssveit og úr Reykjadal. Nú var Davíð Kjartansson einnig mættur og skiptust þeir á að kenna nemendum fram til 17:30.
Um kvöldið var svo efnt til fjölteflið fyrir fullorðna í Borgarhólsskóla, þar sem allir sem vildu gátu reynt sig við Björn. Ekki var mætingin eftir væntingum í fjölteflið því aðeins 11 öttu kappi við Björn. Davíð Kjartansson vann Björn og Smári Sigurðsson gerði jafntefli við Björn. Aðrar skákir vann Björn.
Á morgun verður kennslu framhaldið kl 10:00 og kl 13:00 verður skákmót fyrir börn og unglinga í sal Framsýnar-stéttarfélags. Myndir frá heimsókninni má sjá hér í myndaalbúmi. H.A.
