17.11.2010 kl. 10:58
Tómas varð annar á afmælismóti Hrafns Jökulssonar.
Góð mæting var á afmælismót Hrafns Jökulssonar sem Skákfélag Vinjar hélt pilti til heiðurs í Rauðakrosshúsinu, Borgartúni 25, í gær. Gunnar Björnsson, forseti, startaði mótinu með því að leika fyrsta leikinn fyrir Hrafn gegn hinum eitilharða Birni Sigurjónssyni og tónninn gefinn. Teflt var djarft og reyndi á skákstjórann Róbert Lagerman í einhverjum tilfellum. Reyndar við borðið líka, en stjórinn hélt haus og Tómas Björnsson var sá eini sem náði jafntefli við kappann.

Tómas Björnsson tefldi á Framsýnarmótinu um nýliðna helgi.
Hinn ungi og grjótharði Páll Andrason gerði svo jafntefli við Tómas í lokaumferðinni og tryggði sér þriðja sætið og Róberti það fyrsta.
Efstu menn:
- 1. Róbert Lagerman 6,5
- 2. Tómas Björnsson 6
- 3. Páll Andrason 5
- 4. Gunnar Freyr Rúnarsson 5
- 5. Hrafn Jökulsson 5
- 6. Birgir Berndsen 5
- 7. Björn S. Sigurjónsson 4,5
Frétt fengin af skák.is.
Sjá meira hér http://www.skak.blog.is/blog/skak/entry/1116907/
