10.10.2009 kl. 17:30
15 mín skákmót Goðans 2009 verður haldið 17 október.
15 mín mót Goðans 2009 verður haldið að Laugum í Reykjadal laugardaginn 17 október nk.
Mótið hefst kl 13:00 og því lýkur kl 17:00.
Teflar verða skákir með 15 mín umhugsunartíma á mann og er reiknað með því að tefldar verða 7 umferðir eftir monrad-kerfi, en það fer þó eftir fjölda þátttakenda.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin auk farandbirkars og nafnbótina „15 mín meistari Goðans 2009“ fyrir efsta sætið.
Núverandi 15 mín meistari Goðans er Smári Sigurðsson og á hann möguleika á því að vinna bikarinn til eignar, vinni hann mótið á laugardaginn. Einnig verða veitt verðlaun fyrir þrjá efstu í flokki 16 ára og yngri.
Keppnisgjald er 500 krónur fyrir fullorna en 250 krónur fyrir 16 ára og yngri.
Mótið verður reiknað til atskákstiga.
Æskilegt er að áhugasamir skrái sig til leiks í síðasta lagi kvöldið fyrir mót. H.A.
