21.11.2012 kl. 10:40
15 mín skákmót Goðans-Máta verður á föstudagskvöld
Hið árlega 15. mín skákmót Goðans-Máta verður haldið á Húsavík föstudagskvöldið 23 nóvember nk og hefst það kl 20:00, að því gefnu að veður verði sæmilegt. Teflt er í Framsýnarsalnum að Garðarsbraut 26.
Teflar verða skákir með 15 mín umhugsunartíma á mann og er reiknað með því að tefldar verði 7 umferðir eftir monrad-kerfi, en það fer þó eftir fjölda þátttakenda.
Mótið er opið öllu skákáhugafólki.
Mótið er opið öllu skákáhugafólki.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin auk farandbikars og nafnbótina “15 mín meistari Goðans-Máta 2012” fyrir efsta sætið.
Núverandi 15 mín meistari Goðans-Máta er Smári Sigurðsson.
Einnig verða veitt verðlaun fyrir þrjá efstu í flokki 16 ára og yngri.
Keppnisgjald er 1000 krónur fyrir fullorna en 500 krónur fyrir 16 ára og yngri.
Æskilegt er að áhugasamir skrái sig til leiks í síðasta lagi kvöldið fyrir mót hjá formanni í síma 4643187 eða 8213187 eða á lyngbrekku@simnet.is