Adam Gulyas
Ádám Gulyás varð efstu á skákæfingu sem fram fór sl. mánudagskvöld í Túni á Húsavík. Ádám fékk 2, 5 vinninga. Smári Sigurðsson fékk 1,5 vinninga og Sigurbjörn Ásmundsson og Hermann Aðalsteinsson fengu 1 vinning hvor. Tímamörk voru 10 mín og tefld var einföld umferð.
Óformlegur fundur var haldinn eftir æfinguna um hvenær skákþing Goðans fari fram. Niðurstaðan varð sú að stefna á að halda mótið í september 2026.
Næsta skákæfing fer fram mánudagskvöldið 2. mars í Túni kl 20:00.
