21.1.2010 kl. 10:21
Ævar efstur á æfingu.
Ævar Ákason varð efstur á skákæfingu sem fram fór á Húsavík í gærkvöldi. Ævar gaf engin grið og vann alla andstæðinga sína. Tefldar voru skákir með 10 mín umhugsunartíma á mann.
Ævar Ákason.
Úrslit kvöldsins:
1. Ævar Ákason 6 vinn af 6 mögul.
2. Sigurjón Benediktdsson 4,5
3-4. Sigurbjörn Ásmundsson 3
3-4. Hlynur Snær Viðarsson 3
5-6. Hermann Aðalsteinsson 2
5-6. Snorri Hallgrímsson 2
7. Valur Heiðar Einarsson 0,5
Næsta skákæfing verður að viku liðinni á Stórutjörnum. H.A.
