Ævar efstur á æfingu

Ævar Ákason varð efstur með 5,5 vinninga af 6 mögulegum á skákæfingu sl. mánudagskvöld og leyfði aðeins jafntefli gegn Heimi Bessasyni. Tefldar voru skákir með 10 mín umhugsunartíma á mann.

Úrslit kvöldsins:

1.   Ævar Ákason                     5,5 af 6
2.   Sigurbjörn Ásmundsson    4
3-4. Heimir Bessason              3,5
3-4. Hlynur Snær Viðarsson     3,5
5.    Hermann Aðalsteinsson   2,5
6.    Valur Heiðars Einarsson   1,5
7.    Bjarni Jón Kristjánsson     0,5 

Íslandsmót skákfélaga hefst á föstudaginn í Reykjavík.

Næsta skákæfing verður nk. mánudag kl 20:30