Ágætur árangur á Íslandsmótinu í netskák.

Þrír félagsmenn úr Goðanum tóku þátt í Íslandsmótinu í netskák sem fram fór í kvöld á ICC. 

Einar Garðar Hjaltason og Tómas Veigar Sigurðarson urðu í 19-25 sæti.  Þeir fengu báðir 5 vinninga af 9 mögulegum. Jakob Sævar Sigurðsson varð í sæti 48-52. með 3 vinninga. Stefán Kristjánsson varð Íslandsmeistari með 7,5 vinninga.  Alls kepptu 57 skákmenn á mótinu.

Einar Garðar fékk fyrstu verðlaun, (5000 krónur) skákmanna með undir 1800 skákstigum.  Tefldar voru skákir með 4 mín + 2 sek/á leik, á mann.  H.A.