Ármann Olgeirsson varð efstur á skákæfingu Hugins á Húsavík í gærkvöld. Hann leyfði jafntefli gegn Rúnari Ísleifssyni en vann aðrar skákir. Tíu skákmenn mættu á æfinguna í gærkvöld og voru tefldar fimm umferðir eftir monrad-kerfi með 15 mín umhugsunartíma á mann.
Lokastaðan:
1. Ármann Olgeirsson 4,5 af 5
2. Ævar Ákason 4
3. Rúnar Ísleifsson 3,5
4. Hermann Aðalsteinsson 3
5. Hlynur Snær Viðarsson 3
6. Sighvatur Karlsson 2
7. Heiðar Kristjánsson 2
8. Jón Aðalsteinn Hermannsson 2
9. Jakub Piotr Statkiewicz 1
10. Sam Rees 0
Næsta skákæfing verður að viku liðinni á Húsavík.