1.11.2010 kl. 12:03
Ásgeir kominn í 2300 stig !
Okkar maður, Ásgeir Ásbjörnsson, er samkvæmt nýjum Fide-skákstigalista sem gefin var út í dag, kominn með 2300 elo-stig. Hann hækkaði um 5 stig eftir frábæran árangur á íslandsmóti skákfélaga í október sl. þar sem hann vann 3 skákir og gerði eitt jafntefli. Sérlega glæsilegt hjá Ásgeir því hann hafði ekki teflt kappskák á reiknuðu skákmóti síðan einhvertímann á áttunda áratug síðustu aldar !
Ásgeir er nú í 27. sæti af virkum íslenskum skákmönnum og í 36. sæti ef óvirkir skákmenn eru taldir með.
Ásgeir Ásbjörnsson (2300) th.
Ásgeir er því kominn inn á afreksmannalista skáksambandsins, en þar eru allir innlendir skákmenn sem eru með 2300 stig eða meira. Sjá hér: http://skaksamband.is/?c=webpage&id=441
Ásgeir er stigahæsti félagsmaður Goðans og sá fyrsti sem fer yfir 2300 stig.
Til hamingju Ásgeir !
Björn þorsteinsson hækkar um 6 stig frá því í september, en stig annarra félagsmanna breytast ekki mikið.
Fideskákstig félagsmanna Goðans 1. nóvember 2010.
Nafn. Fidestig breyting +/-
Ásgeir P Ásbjörnsson 2300 +5
Einar Hjalti Jensson 2230 -3
Björn Þorsteinsson 2216 +6
Tómas Björnsson 2151 -1
Sveinn Arnarsson 1934 -6
Sindri Guðjónsson 1917 0
Jakob Sævar Sigurðsson 1807 0
Barði Einarsson 1755 0
Hér geta menn skoðað stöðu sína hjá Fide http://ratings.fide.com/
Allur Íslenski listinn verður birtur síðar í dag eða í kvöld.
