Smári efstur á fyrstu skákæfingu ársins.

Smári Sigurðsson varð vann alla andstæðinga sína tvisvar, á fyrstu skákæfingu ársins sem haldin var í gærkvöldi á Húsavík. Smári fékk 8 vinninga af 8 mögulegum, en tefldar voru skákir með 10 mín. umhugsunartíma á mann, tvöföld umferð.

Úrslit kvöldsins:

1.  Smári Sigurðsson                8 vinn af 8 mögul.
2.  Benedikt Þór Jóhannsson   6
3.  Ævar Ákason                      4
4.  Snorri Hallgrímsson            2
5.  Sigurbjörn Ásmundsson     0

Næsta skákæfing verður á Laugum að viku liðinni.  H.A.