9.5.2010 kl. 16:48
Benedikt og Snorri héraðsmeistarar HSÞ 2010.
Benedikt Þór Jóhannssonvarð í dag héraðsmeistari HSÞ í skák í yngri flokki, en hann vann héraðsmótið örugglega. Benedikt fékk 6 vinninga af 6 mögulegum. Hann var eini keppandinn í flokki 14-16 ára. Þetta var þriðja skiptið í röð sem Benedikt vinnur titilinn og vann hann því bikarinn til eignar. Tefldar voru 6 umferðir eftir monrad-kerfi og var umhugsunartíminn 15 mín á mann.
Mótið fór fram á veitingastaðnum Dalakofanum á Laugum.
Verðlaunahafar. Snorri, Benedikt, Valur, Lena og Sigtryggur.
Snorri Hallgrímsson vann flokk 13 ára og yngri á stigum, en Sigtryggur Vagnsson hafði vinnings forskot á aðra keppendur í 13 ára og yngri flokknum, fyrir lokaumferðina. Sigtryggur tapaði fyrir Val Heiðari í síðustu umferð og endaði í 4. sæti á stigum. Lena Kristín Hermannsdóttir var eini keppandinn í stúlknaflokki og varð því héraðsmeistari í eldri flokki stúlkna.
Frá mótinu í Dalakofanum í dag.
Lokastaðan:
1 Benedikt Þór Jóhannsson, 6
2-4 Snorri Hallgrímsson, 4 22.0 stig
2-4 Valur Heiðar Einarsson, 4 21.0
2-4 Sigtryggur Vagnsson, 4 17.0
5-7 Hlynur Snær Viðarsson, 3 19.0
5-7 Starkarður Snær Hlynsson, 3 18.0
5-7 Snorri Már Vagnsson, 3 15.0
8 Bjarni Jón Kristjánsson, 2
9 Jón Aðalsteinn Hermannsson, 1
10 Lena Kristín Hermannsdóttir, 0
Frá mótinu í Dalakofanum í dag.
Barna og unglingastarf Goðans hefst aftur á haustdögum. H.A.