Skákreglur FIDE breyttust lítilsháttar 1. júlí sl. Fæstar breytingarnar hafa mikið gildi fyrir hinn almenna íslenska skákmann en þó er sjálfsagt fyrir skákmanninn að kynna sér breytingarnar. (skak.is)

farsímar

Stærsta breytingin fyrir hinn almenn skákáhugamenn eru reglur varðandi farsíma. Í nýrri grein (11.3b) segir:

11.3b 
During play, a player is forbidden to have a mobile phone and/or other electronic means of communication in the playing venue. If it is evident that a player brought such a device into the playing venue, he shall lose the game. The opponent shall win. 

The rules of a competition may specify a different, less severe, penalty. 
The arbiter may require the player to allow his clothes, bags or other items to be inspected, in private. The arbiter or a person authorised by the arbiter shall inspect the player and shall be of the same gender as the player. If a player refuses to cooperate with these obligations, the arbiter shall take measures in accordance with Article 12.9.

Samkvæmt greininni er með öllu bannað að hafa GSM-síma á skákvæði. Það má dæma tap á menn fyrir það eitt að taka upp símann til að slökkva á honum. Fremst í greininni er mótshöldurum einstakra móta reyndar heimilað að hafa vægari reglur.

Skákstjóri getur óskað eftir því að leita í fötum keppendum og sé því neitað er hægt að dæma tap á viðkomandi. Að sjálfsögðu eru slík ákvæði ekki notuð nema í algjörum undantekningartilfellum og að um sé að ræða mjög rökstuddan grun um svindl.

Skáhuginn.is mælir með því að skákmenn skilji símana eftir heima eða út í bíl þegar þeir tefla á skákmótum.

Meðal annarra ákvæða má nefna að það er búið að einfalda reglur um hvernig skuli vekja upp nýjan mann.

Búið er að minnka mun á reglum í lengri og skemmri skákum. Það er nýtt í kappskákreglum að dæmi skuli tap eftir tvo ólöglega leiki og skákstjóra er nú skylt að benda á ólöglega leiki í atskákum og hraðskákum. Eitthvað sem hlýtur að vera mjög erfitt í raunveruleikanum.

Skákstjóra er nú heimilt að grípa inn í skákir og dæma jafntefli hafi sama staðan komið upp fimm sinnum eða 75 leikjum leikið án þess að peði sé leikið eða maður drepinn. Þetta er gert vegna þess að dæmi eru um að skákmenn kunni ekki að krefjast jafnteflis.

Nánar má lesa um nýju reglurnar í grein Peter Doggers á Chess.com. Skákmenn eru hvattir til kynna sér þær. Já og muna líka eftir því að skilja símann eftir!