Áætlað er að halda BRIM/Framsýnar og Skákþing Norðlendinga helgina 20 til 22 nóvember á Húsavík. Sú áætlun getur þó tekið breytingum vegna Covid-19 og fyrirkomulag mótsins getur breyst því taka þarf mið af gildandi sóttvarnareglum hverju sinni. Það er tæpur mánuður til stefnu og vonandi verða skárra ástand í þjóðfélaginu þá en er núna.
Fyrirkomulag mótsins
Föstudagurinn 20. nóvember klukkan 19:30
1.-4 umferð. Atskákir með tímamörkunum 15+5
Laugardagurinn 21. nóvember klukkan 11: 5. umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30
Laugardagurinn 21. nóvember klukkan 17: 6. umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30
Sunnudagurinn 22. nóvember klukkan 10: 7.umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30.
Skákstjóri verður Ingibjörg Edda Birgisdóttir.
(Ath þeir sem voru búnir að skrá sig til leiks á mótið sem var frestað, þurfa að gera það aftur)
Eftir mótið verður haldið hraðskákmót með tímamörkunum 3+2. Miðað verður við að það hefjist klukkan 15:00 á sunnudeginum. Sigurvegari hraðskákmótsins fær aukastig í stigakeppninni. Umferðafjöldi ræðst af fjölda keppenda.
Þáttökugjöld: 4000kr.
2000 kr. fyrir 17 ára og yngri
Ókeypis fyrir GM/IM og Hugins félaga 17 ára og yngri
Verðlaunafé í mótinu: (gætu hækkað)
- 15.000
- 10.000
- 8000
Verðlaunasjóður fyrir samanlagðan árangur í mótunum sex:
Heildarkeppnin:
- 125.000kr.
- 75.000kr.
- 50.000kr.
Efsta skákkonan: 33.000kr.
Efstur U1900 skákstigum, júní listinn 2020: 33.000kr.
Efstur 17 ára og yngri: 33.000
Mótið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.
Oddastig (tiebreaks): 1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis úrslit 4. Sonneborn-Berger 5. Oftar svart.
Stigakeppnin virkar þannig að stig eru veitt fyrir efstu 10. sætin. 1 stig fyrir 10. sæti, 2. stig fyrir 9. sæti og svo framvegis. Í 1. sæti í hverju móti verða hins vegar 12 stig veitt. Stigakeppnir með sama sniði verða einnig notaðar til að reikna út aukaverðlaunin. Fjögur bestu mót hvers þáttakanda gilda í stigakeppninni
Skákþing Norðlendinga 2020
Til verðlauna á Skákþingi Norðlendinga geta þó aðeins unnið þeir sem eiga lögheimli á Norðurlandi, en mótið hefur verið haldið árlega og óslitið síðan 1935.
Verði fleiri en einn jafn í keppni um titilinn „Skákmeistari Norðlendinga“ munu stig ráða, en notast verður við eftirfarandi reglu:
Oddastig (tiebreaks): 1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis úrslit 4. Sonneborn-Berger 5. Oftar svart.
Það skal tekið skýrt fram að áform um mótshaldið geta breyst verði samkomubann þrengt frá því sem nú gildir.