Frábær árangur okkar manna. Sigurður Daði vann, en Einar og Kristján töpuðu í lokaumferðinni.

Óhætt er að segja að okkar menn hafi staðið sig frábærlega í Reykjavík Open sem lauk í dag.

Sigurður Daði Sigfússon varð í 30. sæti með 6 vinninga eftir auðveldan sigur í lokaumferðinni, því andstæðingur hann mætti ekki til leiks.

Einar Hjalti Jensson tapaði sinni fyrstu skák í mótinu í dag, gegn stórmeistararnum Aloyzas Kveinys og varð í 41. sæti með 5,5 vinninga. Eins og fram hefur komið var Einar þegar búinn að tryggja sér áfanga að alþjóðlegum titli fyrir skákina í dag.
Stigagróði Einars Hjalta er 33,6 stig. (samk. chess-results)

Kristján Eðvarðsson tapaði fyrir Keaton Kiewra frá USA og endaði Kristján í 69. sæti með 5 vinninga. Rúmlega 200 keppendur tóku þátt í mótinu.

Sigurður Daði og Einar Hjalti unnu til stiga-flokka verðlauna á lokahófinu sem fram fór fyr í kvöld, en birtar verða nánari fréttir af því á morgun.