14.9.2012 kl. 16:21
Framsýnarmótið 2012
Framsýnarmótið í skák 2012 verður haldið helgina 21-23 september nk. í fundarsal stéttarfélagsins Framsýnar að Garðarsbraut 26 á Húsavík. Það er skákfélagið Goðinn/Mátar í Þingeyjarsýslu og Framsýn-stéttarfélag, sem sjá um mótshaldið.
Mótið er öllum áhugasömum opið.
Dagskrá.
1. umf. föstudaginn 21 september kl 20:00 25 mín (atskák)
2. umf. föstudaginn 21 ———— kl 21:00
3. umf. föstudaginn 21 ———— kl 22:00
4. umf. föstudaginn 21 ———– kl 23:00
5. umf. laugardaginn 22 september kl 11:00 90 mín + 30 sek/leik
6. umf. laugardaginn 22 ————- kl 19:30
7. umf. sunnudaginn 23 ————-kl 11:00
Verðlaunaafhending í mótslok.
Verðlaun.
Veittir verða glæsilegir eignarbikarar fyrir þrjá efstu í mótinu sem stéttarfélagið Framsýn gefur í tilefni af samvinnu Framsýnar og skákfélagsins Goðans/Máta í þingeyjarsýslu. Einnig hlýtur efsti utanfélagsmaðurinn eignarbikar.
Mótið verður reiknað til íslenskra skákstiga og til FIDE-skákstiga.
Ekkert þátttökugjald er í mótið.
Upplýsingar.
Allar nánari upplýsingar um Framsýnarskákmótið verða aðgengilegar á heimasíðu skákfélagins Goðans/Máta, ásamt skráningu, stöðu, skákir og svo loka-úrslit, verða birt á http://www.godinn.blog.is/ og áhttp://www.framsyn.is/
Skráning.
Skráning í mótið er hjá Hermanni Aðalsteinssyni, formanni skákfélagins Goðans/Máta, í síma 4643187 og 8213187
