Einar Hjalti Jensson sigurvegari Gagnaveitumótssins

FIDE-meistarinn Einar Hjalti Jensson (2305) sigraði á Gagnaveitumótinu – Haustmóti TR sem lauk í gærkveldi. Einar, sem gerði jafntefli við Oliver Aron Jóhannesson (2007) í lokaumferðinni, hlaut 7,5 vinning í 9 skákum. Frábær frammistaða hjá honum. Jón Viktor Gunnarsson (2409) og Stefán Kristjánsson (2491) urðu í 2.-3. sæti með 7 vinninga eftir jafntefli í innbyrðisskák í lokaumferðinni.

Einar Hjalti.jpg 2

Einar hefur farið á kostum við skákborðið í haust.  Hann er taplaus 21 skák  sem hann hefur teflt og þar af eru 16 sigrar og 5 jafntefli.

Einar hækkar líklega um 45 stig og verður væntanlega komin með 2350 stig 1. nóvmeber nk.  

 

Lokastaðan í A-flokki:

Rk.   Navn RatI Klub/By Pts. Rp rat+/-
1 FM Jensson Einar Hjalti 2305 GM Hellir 7.5 2443 22.5
2 IM Gunnarsson Jón Viktor 2409 TB 7.0 2379 -0.6
3 GM Kristjánsson Stefán 2491 TB 7.0 2370 -6.8
4   Bergsson Stefán 2131 SA 5.0 2233 16.2
5   Jóhannesson Oliver Aron 2007 Fjölnir 3.5 2123 14.7
6   Ragnarsson Dagur 2040 Fjölnir 3.5 2120 9.3
7   Þórhallsson Gylfi Þór 2154 SA 3.0 2062 -18.5
8   Björnsson Sverrir Örn 2136 Haukar 3.0 2064 -14.9
9   Ragnarsson Jóhann Hjörtur 2037 TG 3.0 2075 2.4
10   Maack Kjartan 2128 TR 2.5 2024 -20.7

Mótstöflu flokksins má nálgast á Chess-Results.