2.11.2010 kl. 10:34
Framsýnarmótið í skák.
Framsýnarmótið í skák 2010 verður haldið helgina 12-14 nóvember nk. í fundarsal stéttarfélagsins Framsýnar að Garðarsbraut 26 Húsavík.

Það er skákfélagið Goðinn í Þingeyjarsýslu og Framsýn-stéttarfélag, sem sjá um mótshaldið.
Mótið er öllum áhugasömum opið, en einungis félagar í Framsýn-stéttarfélagi, öðrum stéttarfélögum í Þingeyjarsýslu eða í skákfélaginu Goðanum geta unnið til verðlauna.
Dagskrá.
1. umf. föstudaginn 12 nóvember kl 20:00 Tímamörk 25 mín á mann (atskák)
2. umf. föstudaginn 12 nóvember kl 21:00 Tímamörk 25 mín á mann (atskák)
3. umf. föstudaginn 12 nóvember kl 22:00 Tímamörk 25 mín á mann (atskák)
4. umf. laugardaginn 13 nóvember kl 10:00 Tímamörk 90 mín + 30 sek á leik (kappskák)
5. umf. laugardaginn 13 nóvember kl 16:00 Tímamörk 90 mín + 30 sek á leik (kappskák)
6. umf. sunnudaginn 14 nóvember kl 10:00 Tímamörk 90 mín + 30 sek á leik (kappskák)
Verðlaunaafhending í mótslok.
Verðlaun.
Veittir verða glæsilegir eignarbikarar fyrir þrjá efstu í mótinu sem stéttarfélagið Framsýn gefur í tilefni af samvinnu Framsýnar og skákfélagsins Goðans í þingeyjarsýslu.
Einnig verða verðlaun veitt fyrir þrjá efstu í flokki 16 ára og yngri.
Mótið verður reiknað til íslenskra skákstiga og til fide skákstiga.
Ekkert þátttökugjald er í mótið.
Upplýsingar.
Allar nánari upplýsingar um framsýnarskákmótið verða aðgengilegar á heimasíðu skákfélagins Goðans, ásamt skráningu, stöðu, skákir og svo loka-úrslit, verða birt á http://www.godinn.blog.is/ og á http://www.framsyn.is/
Skráning.
Skráning í mótið er hér efst á heimasíðu Goðans á sérstöku skráningarformi. (væntanlegt). Einnig er hægt að skrái sig hjá Hermanni Aðalsteinssyni, formanni skákfélagins Goðans, í síma 4643187 og 8213187 og á lyngbrekka@magnavik.is
Listi yfir skráða keppendur er hér:
https://spreadsheets.google.com/ccc?key=0Arg3nCphWhFydHJESWwwTlh5bTljTHFMaG5EV3llOGc&hl=en&authkey=CIS7g8oE#gid=0
Svo er hægt að skrá sig til keppni á skrifstofu Framsýnar-stéttarfélags Garðarsbraut 26 Húsavík.
