Fréttir af aðalfundi

Aðalfundur Skákfélagsins Goðans-Máta var haldinn í gærkvöld. Fyrir fundinum lágu nokkrar lagabreytingatillögur sem fengu allar brautargengi. Meðal annars sú breyting að fjölga stjórnarmönnum úr þremur í fimm.

Félagsmerki Goðinn Mátar

 

Stjórn skákfélagsins Goðans-Máta skipa því Hermann Aðalsteinsson, Sigurbjörn Ásmundsson, Sighvatur Karlsson, Pálmi Ragnar Pétursson og Jón Þorvaldsson. 

Smávægilegt tap var á rekstri félagsins á sl. ári en veltuaukningin milli ára varð mjög mikil. Fundargerð aðalfundarins verður brátt aðgengileg og reikningar félagsins verða sendir félagsmönnum von bráðar í tölvupósti.