Goðinn skákfélag ársins 2010.

Gunnar Björnsson ritstjóri skák.is og forseti skáksambands Íslands skrifar skákannál ársins 2010 á skák.is í gær. Þar fer hann yfir helstu atburði í Íslensku skáklífi liðsins árs og velur ma. Goðann sem skákfélag ársins 2010.

“Ég ætla samt að koma á óvart í ár og velja Goðann sem félag ársins.  Goðinn hefur komið eins og ferskur andblær í íslenskt skáklíf og lífið í kringum Íslandsmót skákfélaga vakti athygli.    Að fá t.d. Einar Hjalta til að halda fyrirlestur í gegnum Skype er eftirtektarvert fyrir fjarstadda Goðamenn Og því má ekki gleyma að Goðinn var búinn til úr ekki neinu á sínum tíma og er hrein viðbót við íslenskt skáklíf”.  

Endurkomu ársins að mati Gunnars og fleiri er endurkoma Ásgeirs Ásbjörnssonar að skákborðinu, en um það skrifar Gunnar:

“Hér ætla ég að nefna Ásgeir P. Ásbjörnsson sem tefldi sínar fyrstu kappskákir í einhverja áratugi.  Hann tefldi fyrir Goðann og hlaut 3½ vinning í fjórum skákum og komst þar með inn á stigalista afreksmanna, þ.e.. þeirra skákmanna sem hafa meira en 2300 skákstig og teljast virkir samkvæmt skilgreiningu FIDE”.

Að sjálfsögðu erum við afskaplega hreyknir að þessari tilnefningu og er hún okkur frekari hvatning inn í framtíðina. 

Sjá annálinn hér: http://www.skak.blog.is/blog/skak/entry/1131747/