Hermann, Rúnar, Ingi Tandri, Kjartan, Smári, Jakob, Ádám og Hilmar, ásamt forseta skáksambands Íslands Jóhönnu B Jóhannsdóttur. Á myndina vantar Sigurð J Gunnarsson
Skákfélagið Goðinn vann til bronsverðlauna á Íslandsmóti skákfélaga sem fram fór um helgina í Rímaskóla í Reykjavík. A-lið Goðans varð í 3. sæti í 3. deild með 9 stig af 14 mögulegum og samtals 20,5 vinninga í hús.
3. sætið dugar ekki til að vinna sig upp í 2. deild, en liðið verður áfram í 3. deild næsta tímabil.
B-sveit Goðans endaði í 16 sæti í 4. deild af 24 liðum, með 6 stig og 20 vinninga og var talsvert frá toppnum að þessu sinni.
Nánar verður greint frá Íslandsmóti skákfélaga hér á vefnum síðar í vikunnni.
