28.3.2014 kl. 23:24
Heimir Páll og Alexander Már efstir á æfingu
Heimir Páll Ragnarsson sigraði í eldri flokki með 4v í fimm skákum. Næstir komu Óskar Víkingur Davíðsson og Alec Elías Sigurðarsons með 3,5 og hafði Óskar betur í stigaútreikningnum og hlaut annað sætið og Alec það þriðja. Í yngri flokki voru Alexander Már Bjarnþórsson og Sólon Siguringason efstir og jafnir að vinningum með 4,5v í fimm skákum. Þeir voru einnig jafnir í öllum stigaútreikningum og lentu í bráðabana þar sem Alexander hafði betur. Fyrsta sæti var því hans og Sólon hlaut annað sætið. Það voru fjórir jafnir með 3v en það voru Gabríel Sær Bjarnþórsson, Sævar Breki Snorrason, Aron Kristinn Jónsson og Óttar Örn Bergmann Sigfússon. Hér dugði einfaldur stigaútreikningur og hlaut Gabríel Sær þriðja sætið.
Þau sem tóku þátt í æfingunni voru: Heimir Páll Ragnarsson, Óskar Víkingur Davíðsson, Alec Elías Sigurðarson, Axel Óli Sigurjónsson, Birgir Ívarsson, Jón Hreiðar Rúnarsson, Brynjar Haraldsson, Stefán Orri Davíðsson, Oddur Þór Unnsteinsson, Sindri Snær Kristófersson, Róbert Luu, Alexander Jóhannsson, Ólafur Tómas Ólafsson, Alexander Már Bjarnþórsson, Sólon Siguringason, Gabríel Sær Bjarnþórsson, Sævar Breki Snorrason, Aron Kristinn Jónsson, Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Baltasar Máni Wedholm, Arnar Jónsson, Birgir Logi Steinþórsson, Þórdís Agla Jóhannsdóttir, Þórður Hólm Hálfdánarson, Adam Omarsson og Elín Edda Jóhannsdóttir.
Næsta æfing verður svo mánudaginn 31. mars nk. og hefst kl. 17.15 og verður þá einnig skipt í tvo flokka. Stelpuæfingar eru svo á hverjum miðvikudegi kl. 17.15. Á æfingunum hjá stelpunum er einnig ágætis þátttaka eins og hjá strákunum. Æfingarnar eru haldnar í Álfabakka 14a í Mjóddinni, gengið inn á milli Subway og Föken Júlíu og salurinn er á þriðju hæð.
