Hinn kunni stórmeistari og skákfræðimaður, Helgi Ólafsson, er genginn til liðs við Skákfélagið Hugin. Ljóst er að félaginu er gríðarlegur styrkur að komu Helga enda um að ræða einn allra öflugasta og reyndasta skákmann þjóðarinnar.
Ferill Helga er einkar glæsilegur. Árið 1970 varð hann unglingameistari Íslands með 100% árangri. Næstu ár varð Helgi tvívegis skákmeistari Vestmannaeyja og leiktíðina 1973 -´74 vann hann flest skákmót sem hann tók þátt í. Á alþjóðavettvangi tefldi hann fyrst 1973 þegar sveit Menntaskólans við Hamarhlíð varð fyrst íslenskra skólasveita til að verða Norðurlandameistari.
Helgi varð alþjóðlegur meistari eftir góða frammistöðu á alþjóðlegu móti í New York sumarið 1976 og Lone Pine 1978. Í ársbyrjun 1984 gerðist hann atvinnumaður í skák og varð fljótlega stórmeistari eftir sigur á alþjóðalega Reykjavíkurmótinu 1984 og sigur á alþjóðega mótinu í Neskaupsstað sama ár en lokaáfanginn kom í Kaupmannahöfn 1985 þegar hann varð í 2. – 4. sæti ásamt Bent Larsen og Curt Hansen á afmælismóti Bronshoj skákkúbbsins. Helgi varð efstur ásamt Simen Agdestein og Jóhanni Hjartarsyni á Skákþingi Norðurlanda 1985.
Helgi tefldi á árunum 1975 – 1996 12 sinnum í landsliðsfokki á Skákþingi Íslands. Hann varð á þessum tíma skákmeistari Íslands sex sinnum og í 2. sæti fimm sinnum. Helgi hefur orðið Íslandsmeistari í atskák oftar en nokkur annar eða fjórum sinnum og hraðskákmeistari Íslands sex sinnum. Helgi sigraði á 23 helgarmótum tímaritsins Skákar á árunum 1980 – 1997. Auk þess hefur hann unnið aragrúa annarra innlendra móta.
Eins og áður sagði varð Helgi hlutskarpastur á Reykjavíkurmótinu 1984, ásamt Jóhanni Hjartarsyni og Samuel Reshevsky, og varð efstur með níu öðrum á Reykjavíkumótinu 1990. Hann tefldi síðast á Reykjavíkurskákmótinu 2014 og varð í 2. – 5. sæti, hlaut 8 vinninga af 10 mögulegum. Hann varð í 2. sæti með öðrum á einu sterkasta opna móti ársins í New York 1986 og náði sama árangri aftur í sama móti 1989 og 1990. Um þetta leyti var Helgi í kringum 30. sæti á heimslista FIDE. Helgi sigraði á alþjóðlegu móti tímaritins Skákar við Djúp sumarið 1988 og nokkrum vikum síðar fór hann hann taplaus í gegnum 13 umferða minningarmót um Tschigorin í Sochi við Svartahaf. Ekki er þekkt dæmi um annan Vesturlandabúa sem komist hefur taplaus í gegnum slíkt mót í gömlu Sovétríkjunum.
Helgi hefur teflt 16 sinnum fyrir hönd þjóðar sinnar á Ólympíumótum, oftar en nokkur annar Íslendingur. Hann tefldi á 1. borði í Saloniki 1984, Dubai 1986 og Novi Sad 1990 og flestar skákirnar á Möltu 1980. Helgi var þjálfari og liðsstjóri íslenska Ólymíuliðsins 2010 og 2012 og einnig liðsstjóri og þjálfari íslenska liðsins á Evrópumótum landsliða 2011, og 2013. Í fyrra skipti í Porto Carras tók hann sæti í liðinu vegna forfalla, hlaut 4 ½ vinning af 5 mögulegum og fékk silfurverðlaun fyrir frammistöðu sína. Helgi hyggur á þátttöku í gullaldarliði Íslands sem teflir á EM í Reykjavík í haust.
Helgi hefur verið atkvæðamikill skákpistlahöfndur og blaðamaður á ýmsum miðlum og hefur ritað reglulega skákpistla í Morgunblaðið frá árinu 2006. Helgi hefur einnig skrifað ótal greinar í blöð og tímarit hér á landi og erlendis. Hann hefur ritað og þýtt nokkrar bækur þ. á m. bókina Benóný með Braga Halldórssyni og Jóni Torfasyni, bókina „Bobby Fischer comes home“ sem kom út í Hollandi vorið 2012 og skrifað fyrra bindið af tveimur um Reykjavíkurskákmót í 50 ár. Þá hefur hann m.a. snarað kennslubókinni Skák og mát sem Hrókurinn dreifði í grunnskóla landsins í um 25 þús. eintökum og einnig þýtt FIDE-kennslubókina Skákþjálfun sem FIDE gaf út. Helgi gerðist skólastjóri Skákskóla Íslands árið 1996 og dró þá mjög úr taflmennsku en hefur þó alltaf haldið sér við með þátttöku í kappskákmótum eftir því sem tími hefur unnist til.
Helgi Ólafsson, stórmeistari:
Ég hef notið þess að keppa fyrir hönd Taflfélags Vestmannaeyja um árabil og þakka félögum mínum þar góð kynni. Nú geng ég til liðs við annað skemmtilegt og vel mannað félag. Sérstaklega líst mér vel á áherslu Huginsmanna á skákmenningu og metnað þeirra til þess að félagsmenn eflist að styrk samhliða vexti og viðgangi félagsins. Þar er auðvitað lykilatriði að líta svo á að allir skákmenn geti bætt sig fram eftir öllum aldri.
Hermann Aðalsteinsson, formaður Hugins:
Þetta eru stór tíðindi. Við Huginsmenn erum auðvitað stoltir af því að þessi öflugi stórmeistari laðist að okkar félagi. Ljóst er að með Helga er nýrri og sterkri stoð rennt undir framtíð Hugins meðal fremstu skákfélaga landsins. Við hlökkum til að njóta visku hans og atfylgis og gerumst nú enn upplitsfjarfi fyrir komandi leiktíð. Þar er eitt af markmiðum okkar að verja Íslandsmeistaratilil félagsins.