12.4.2010 kl. 16:18
Héraðsmót HSÞ 2010.
Héraðsmót HSÞ í skák 17 ára og eldri hefst í Litlulaugaskóla í Reykjadal miðvikudagskvöldið 14. apríl kl 20:00, en þá verður fyrri hlutinn tefldur. Tímamörk eru 25 mín á skák (atskák)
Í fyrri hlutanum verða tefldar 3-4 umferðir, en 2-3 umferðir í seinni hlutaum, sem fram fer viku síðar á sama stað. Umferðafjöldin ræðst af keppendafjölda.
Skráning í mótið er hjá formanni lyngbrekka@magnavik.is
Æskilegt er að þátttakendur skrái sig til keppni eigi síðar en kl 17:00 á miðvikudag.
Mótið er tilvalin upphitun fyrir Skákþing Norðlendinga sem fram fer um næstu helgi.
