3.5.2011 kl. 21:14
Héraðsmót HSÞ í skák fyrir 16 ára og yngri.
Laugardaginn 7. maí verður héraðsmót HSÞ í skák fyrir 16 ára og yngri haldið á veitingastaðnum Dalakofanum á Laugum. Mótið hefst kl 13:00 og lýkur kl. 16:00.
Tefldar verða 7 umferðir eftir monrad-kerfi og verður umhugsunartíminn 15 mín á keppanda í hverri skák.
Verðlaun verða veitt í tveimur flokkum:
13 ára og yngri (1-7 bekkur)
14-16 ára (8-10 bekkur)
Vinningahæsti keppandinn hlýtur farandbikar að launum og nafnbótina Héraðsmeistari HSÞ í skák 2010 !
Þátttökugjald er krónur 500- Sjoppa er á staðnum.
Skáning í mótið fer fram hjá Hermanni í síma 4643187 eða með tölvupósti á netfangið: Lyngbrekka@magnavik.is
