Í gær var dregið í 2. umferð í Hraðskákkeppni taflfélaga. Einni viðureign er ólokið úr fyrstu umferð, en TG og Breiðablik mætast á mánudaginn (22. ágúst) kl. 19:30 í Stúkunni í Kópavogi.
2. umferð skal vera lokið eigi síðar en 30. ágúst, en þá tekur við hlé vegna Ólympíumótsins í Bakú.
Úrslit 1. umferðar
- Skákgengið 42,5 – Vinaskákfélagið 29,5
- SA 43 – Fjölnir 29
- Huginn b 58 – Kvennalandsliðið 14
- Breiðablik – TG. Mánudaginn 22. ágúst kl. 19:30 í Stúkunni.
TR a, TR unglingalið, Huginn a og SSON fóru beint í 2. umferð.
2. umferð
- Huginn a – SSON
- SA – TR unglingalið
- Skákgengið – Huginn b
- TG/Breiðablik – TR