Skákfélag Akureyrar og Fjölnir áttust við í 16-liða úrslitum Hraðskákkeppni taflfélaga miðvikudagskvöldið 12. ágúst. Keppnin fór fram á sal Skákskóla Íslands. Fyrirfram mátti búast við all jafnri viðureign enda liðin áþekk á ELO-stigum. Eftir fyrstu tvær umferðinar stóðu leikar jafnt, sex vinningar gegn sex. Þá gáfu Skákfélagsmenn heldur betur í og tryggðu sér góða forystu í hálfleik, 22 ½ – 13 ½ . Seinni hálfleikur var nokkuð jafnari en hann vann Skákfélagið með 19 ½ vinningi gegn 16 ½. Lokastaðan var því 42 – 30 fyrir Skákfélag Akureyrar.
Nýjustu liðsmenn félagsins stóðu sig best. Þannig fékk Björn Ívar Karlsson tíu vinninga af tólf mögulegum og Arnar Þorsteinsson níu vinninga af tólf mögulegum. Bestur Fjölnismanna var Sigurbjörn Björnsson sem er nýgenginn í félagið. Hann fékk átta vinninga af tólf mögulegum.
Einstaklingsúrslit:
Skákfélag Akureyrar:
Björn Ívar Karlsson 10
Arnar Þorsteinsson 9
Halldór Brynjar Halldórsson 7
Jón Kristinsson 7
Stefán Bergsson 5
Gylfi Þórhallsson 4
Allir tefldu 12 skákir.
Fjölnir:
Sigurbjörn Björnsson 8/12
Tómas Björnsson 5/11
Erlingur Þorsteinsson 5/11
Dagur Ragnarsson 4 ½ /12
Jón Trausti Harðarson 4/11
Jón Árni Halldórsson 2 ½ /10
Dagur Andri Friðgeirsson 1/5