Hraðskákmót Goðans 2011 fer fram annað kvöld.

Goðamerkið 100 (2)
Hraðskákmót Goðans 2011 verður haldið í sjöunda skipti, þriðjudagskvöldið 27 desember á Húsavík. 
Mótið fer fram í Framsýnar-salnum að Garðarsbraut 26 og hefst stundvíslega kl 20:00.
Reiknað er með því að mótslok verði um kl 23:00.

Tefldar
verða 11 umferðir eftir monrad-kerfi. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú
efstu sætin, auk farandbikars fyrir sigurvegarann. Einnig verða veitt verðlaun fyrir þrjá efstu í yngri flokki (16 ára og yngri)

Núverandi hraðskákmeistari Goðans er Rúnar Ísleifsson.

Þátttökugjald er 500 krónur fyrir fullorna en 250 krónur fyrir 16 ára og yngri.  

Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig til keppni hjá formanni lyngbrekka@magnavik.is eða í síma 4643187  8213187 begin_of_the_skype_highli  end_of_the_skype

Titilhafar frá upphafi:

2005  Baldur Daníelsson
2006  Smári Sigurðsson
2007  Tómas V Sigurðarson
2008  Smári Sigurðsson
2009  Jakob Sævar Sigurðsson
2010  Rúnar Ísleifsson
2011   ?