9.12.2011 kl. 21:31
Hraðskákmót Goðans 2011 verður haldið 27 desember.

Hraðskákmót Goðans 2011 verður haldið í sjönda skipti, þriðjudagskvöldið 27 desember á Húsavík.
Mótið fer fram í Framsýnar-salnum að Garðarsbraut 26 og hefst stundvíslega kl 20:00.
Reiknað er með því að mótslok verði um kl 23:00.
Tefldar
verða 11 umferðir eftir monrad-kerfi. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú
efstu sætin, auk farandbikars fyrir sigurvegarann.
Núverandi
hraðskákmeistari Goðans er Rúnar Ísleifsson.
Einnig verða veitt
verðlaun fyrir þrjá efstu í yngri flokki (16 ára og yngri)
Þátttökugjald er 500 krónur fyrir fullorna en 250 krónur fyrir 16 ára og yngri.
Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig til keppni hjá formanni lyngbrekka@magnavik.is eða í síma4643187 gsm 8213187 þegar nær dregur.
Titilhafar frá upphafi:
2005 Baldur Daníelsson
2006 Smári Sigurðsson
2007 Tómas V Sigurðarson
2008 Smári Sigurðsson
2009 Jakob Sævar Sigurðsson
2010 Rúnar Ísleifsson
2011 ?
