7.11.2007 kl. 10:04
Rúnar rúllaði öllum upp !
Rúnar Ísleifsson kom, sá og sigraði á skákæfingu hjá félaginu í gærkvöldi. Rúnar vann alla andstæðinga sína, 9 að tölu. Tefldar voru skákir með 10 mín umhugsunartíma. Úrslit urðu eftirfarandi :
Rúnar Ísleifsson 9 vinn af 9 mögul.
Ármann Olgeirsson 7
Jóhann Sigurðsson 6
Þorgrímur Daníelsson 5
Hermann Aðalsteinsson 5
Ketill Tryggvason 4
Sigurbjörn Ásmundsson 4
Sighvatur Karlsson 3
Dagur Þorgrímsson 2
Ásmundur Sighvatsson 0
Sighvatur og Ásmundur komu á skákæfingu hjá Goðanum í fyrsta skipti í gærkvöldi.