27.12.2013 kl. 12:59
Hraðskákmótinu frestað. Verður annað kvöld, laugardagskvöld, kl 20:00
Hraðskákmót GM-Hellis á norðursvæði verður haldið laugardagskvöldið 28 desember í húsnæði Framhaldsskólans á Húsavík og hefst það kl 20:00. Tefldar verða 9-11 umferðir í einum flokki eftir monrad-kerfi. Tímamörk verða 5 mín á mann í hverri skák. Mótið er öllum opið, en einungis félagsmenn í GM-Helli geta unnið til verðlauna.
Veitt verða verðlaun í fullorðinsflokki og í flokki 16 ára og yngri. Farandbikar handa sigurvegaranum í báðum flokkum.
Mótsgjald er 500 krónur á alla.
Skráning er hafin í mótið og áhugasamir geta skráð sig til leiks hjá formanni í síma 4643187 eða 8213187. Líka hægt að senda skráningu á lyngbrekku@simnet.is
