Skákæfing á Tornelo fór fram í gærkvöldi. 6 keppendur mættu til leiks og urðu Ingi Hafliði Guðjónsson og Kristján Ingi Smárason efstir og jafnir með 4,5 vinninga af 5 mögulegum.

Ásgeir Magnússon og Jóhannes Már Sigurðarson kom næstir með tvo vinninga og Hermann Aðalsteinsson og Sigurbjörn Ásmundsson fengu einn vinning hvor.

Allir tefldur við alla og voru tímamörk 10+2.

Vegna landsleiks við Tyrki nk. mánudagskvöld fer næsta mándagsæfing einnig fram á Tornelo og byrjar strax að leik loknum. Nánar um það síðar.