Skip to content
11. mars, 2026
  • Skák.is
  • Skáksamband Íslands
  • Skákskóli Íslands
  • Skákkennsla.is
  • FIDE
Skákfélagið Goðinn

Skákfélagið Goðinn

Sel-Hótel Mývatn & Mývatn Öl Open 2026 - banner.png haus
Primary Menu
  • Æfinga og mótaáætlun
  • Um Goðann
    • English – About Godinn chess club
    • Tún – Aðastaða Goðans á Húsavík
    • Félagatal Goðans
    • Titilhafar
    • Skákmenn Goðans
    • Innganga í Goðann
    • Fundargerðir – Ársskýrslur – Skákmaður ársins
    • Stjórn Goðans
    • Styrkja Goðann
    • Lög Skákfélagsins Goðans
    • Myndir
    • Íslandsmót Skákfélaga – English
    • Skák í Bændablaðið
    • Aðildargjöld að SÍ
    • Tornelo
    • Skákþing Goðans/Meistaramót – Tilhögun
  • Framsýnarmótið
  • Meistaramótið
  • Skákasafn
    • Skákir úr mótum
      • 20 ára afmælismót Goðans 2025
      • Reykjavík Open 2023 – Skákir
      • Skákir úr Skákþingum Goðans
      • Skákir úr Framsýnarmótum Goðans
      • Skákir úr Janúarmótum Goðans
      • Skákir úr ýmsum mótum
      • Skákir frá Íslandsmóti Skákfélaga 2013-2014
      • Óvirkir félagsmenn – Skákir
        • Roman Juhas
        • Hlynur Snær Viðarsson
        • Jón Aðalsteinn Hermannsson
        • Heimir Bessason
        • Snorri Hallgrímsson
        • Valur Heiðar Einarsson
        • Jakub Statkiewicz
        • Guðmundur Hólmgeirsson
        • Viðar Njáll Hákonarson
        • Benedikt Þorri Sigurjónsson
        • Árni Garðar Helgason
        • Ketill Tryggvason
        • Baldur Daníelsson
        • Hallur Birkir Reynisson
        • Sigurjón Benediktsson
    • Tómas Veigar Sigurðarson
    • Ingi Tandri Traustason
    • Smári Sigurðsson
    • Rúnar Ísleifsson
    • Jakob Sævar Sigurðsson
    • Sigurður Daníelsson
    • Hermann Aðalsteinsson
    • Ármann Olgeirsson
    • Kristján Ingi Smárason
    • Ævar Ákason
    • Sigurbjörn Ásmundsson
    • Hilmar Freyr Birgisson
    • Sighvatur Karlsson
    • Adrian Benedicto
    • Benedikt Þór Jóhannsson
    • Tryggvi Þórhallsson
    • Hannibal Óskar Guðmundsson
    • Aðalsteinn Leifs Maríuson
    • Kári Arnór Kárason
    • Björn Gunnar Jónsson
    • Jóhannes Haukur Hauksson
      • Ingi Hafliði Guðjónsson
    • Alfreð Steinmar Hjaltason
  • Skákstig
Video
  • Home
  • Fréttir
  • Íslandsmót skákfélaga – Pistill formanns
  • Fréttir
  • Íslandsmót skákfélaga

Íslandsmót skákfélaga – Pistill formanns

Hermann Aðalsteinsson 10. mars, 2026
  • Share
  • Share on Facebook (Opens in new window) Facebook
  • Share on Reddit (Opens in new window) Reddit
  • Share on Pinterest (Opens in new window) Pinterest
  • Share on WhatsApp (Opens in new window) WhatsApp
  • Share on X (Opens in new window) X
55136577115_0e188723b2_k

Sighvatur Karlsson og Ævar Ákason. Mynd: Tómas Tandri Jóhannsson

Skákfélagið Goðinn vann til bronsverðlauna á Íslandsmóti skákfélaga, seinni hluta, sem fram fór um helgina í Rimaskóla í Reykjavík.A-lið Goðans varð í 3. sæti í 3. deild með 9 stig af 14 mögulegum og samtals 20,5 vinninga í hús. Liðið vann allar sínar viðureignir í seinni hlutanum, en bilið í efstu tvö liðin var of mikið eftir erfiðan fyrri hluta í nóvember, þar sem A-liðið var ekki eins sterkt og það var núna um helgina.

Goðinn vann mikilvægan sigur á C-sveit SA 3,5-2,5 í 5. umferð og það lá fyrir að þetta væri lykil viðureign sem mætti helst ekki tapast. Ádám Gulyás byrjaði viðureignina með sigri á neðsta borði og aðrar skákir enduðu með jafntefli, enda sveitirnar báðar mjög svipaðar á stigum. 

Síðari viðureignin laugardagsins var gegn botnliði Snæfellsbæjar sem voru þegar fallnir þegar umferðin hófst. Aftur var það Ádám sem byrjaði á sigri en í þetta skiptið vegna þess að hann fékk ekki andstæðing. Jakob Sævar og Smári unnu sínar skákir en Rúnar tapaði. Það fór svo að tvö jafntefli litu dagsins ljós á efstu borðunum hjá Inga Tandra og Sigurði Jóni og Goðinn vann 4-2. 

Ingi Tandri Traustason og Sigurður Jón Gunnarsson. Myd: Tómas Tandri Jóhannsson

Í loka umferðinni á sunnudeginum fengum við vini okkar úr Skagafirðinum. Bæði lið voru örugg um áframhaldandi sæti í 3. deild en ljóst var að með sigri Goðans væri 3. sætið í deildinni tryggt og svo fór að lokum. Smári, Kjartan og Rúnar unnu sínar skákir, en Jakob tapaði. Aftur gerðu þeir Ingi Tandri og Sigurður Jón jafntefli á efstu borðunum og 4-2 sigur staðreynd og 3. sætið tryggt.

Eftir erfiðan fyrri hluta í nóvember var það kærkomið að geta stillt upp mun sterkara liði núna í seinni hlutanum. Innkoma Sigurðar Jóns og Kjartans Ingvarssonar skipti þar sköpum og liðsmenn A-liðsins voru kátir með brons verðlaunin sem þeir fengu strax eftir sigurinn gegn Skagfirðingum. 

Sterkara A-lið leiddi af sér aðeins sterkara B-lið, en það dugði ekki til gegn TR-e sveit þar sem sú viðureign tapaðist 2-4. Kristján Ingi vann á efsta borði og Óskar Páll og Sighvatur gerðu jafntefli á neðstu tveimur borðunum. Hilmar, Ævar og Ingi Hafliði töpuðu sínum skákum.

Í seinni umferðinni á laugardeginum fékk B-liðið svo TR-f sveit. Hermann, Hilmar, Ævar og Sighvatur unnu sínar skákir en Kristján og Lárus töpuðu. Viðureignin fór því 4-2 og ljóst að B-sveitin myndi parast gegn sterkari sveit í lokaumferðinni á sunnudeginum. 

B-liðið fékk SFÍ-b sveit og var mikill stigamunur á öllum borðum okkur í óhag. Fyrirfram var stórt tap í uppsiglingu en raunin varð önnur. Kristján Ingi vann sigur á mun stiga hærri andstæðingi á öðru borði og Ádám Gulyás, sem var kominn niður í B-liðið í þessari umferð, gerði jafntefli á 1. borði og það gerði einnig Ingi Hafliði á 4. borði. Hilmar, Hannibal og Lárus töpuðu sínum skákum. Viðureignin fór því 2-4 og langt því frá að vera algjört burst.

B-sveit Goðans endaði því í 16 sæti í 4. deild af 24 liðum, með 6 stig og 20 vinninga en var talsvert frá toppnum að þessu sinni. 

Smári Sigurðsson. Mynd: Tómas Tandri Jóhannsson

Heilt yfir má segja að árangurinn hafi verið ágætur hjá báðum liðum. Ljóst var að ólíklegt væri að A-liðið næði 1 eða 2. sæti í 3. deild þar sem við náðum ekki að stilla upp nægilega sterku liði í fyrri hlutanum. Til þess var forskot hinna liðanna orðið of mikið fyrir seinni hlutann.

Sigurður Jón Gunnarsson kom inn á 2. borð í A-liðið eftir margra ára fjarveru frá skákborðinu og gerði jafntefli í öllum sínum þremur skákum.  Traust endurkoma hjá Sigurði. Kjartan Ingvarsson gekk til liðs við Goðann nú nýlega og kom sterkur inn á 4 og 5. borð. Hann tefldi tvær skákir, báðar með svörtu, vann aðra og gerði jafntefli í hinni. Sterk innkoma hjá Kjartani. 

Ingi Tandri Traustason var traustur að venju og leiddi A-liðið í tveimur umferðum og gerði jafntefli í þeim báðum. Smári Sigurðsson og Ádám Gulyás unnu báðir tvær skákir og gerðu eitt jafntefli. Jakob Sævar Sigurðsson og Rúnar Ísleifsson voru báðir með 1X2 í sínum skákum, unnu eina, gerðu eitt jafntefli og töpuðu einni skák. Aðrir tefldu ekki í A-sveitinni í seinni hlutanum. A-liðið á Chess-results.

Kristján Ingi Smárason fékk 2 vinninga af 3 mögulegum í B-sveitinni. Sighvatur Karlsson fékk 1,5 vinninga af 2 mögulegum, Hermann Aðalsteinsson fékk 1 vinning af 1 mögulegum. Ævar Ákason fékk 1 af 2 mögulegum. Hilmar Freyr Birgisson fékk 1 af 3 mögulegum og þeir Ingi Hafliði Guðjónsson og Óskar Páll Davíðsson fengu hálfan vinning hvor. Aðrir komust ekki á blað í B-liðinu. B-liðið á chess-results.

Ljóst er að 3. deildin næsta keppnistímabil verður öflug. Mislyndir Biskupar unnu sig upp úr 4. deild og Austfirðingar féllu niður í 3. deild úr 2. deild. Það verða því Þingeyingar, Skagfirðingar og Austfirðingar með lið í 3. deild á næsta ári, auk sveitar frá Akureyri.

Að lokum vil ég þakka öllum þeim sem tefldu fyrir Goðann í mótinu tímabilið 2025-26

Hermann Aðalsteinsson formaður og liðsstjóri Goðans

About the Author

Hermann Aðalsteinsson

Administrator

View All Posts

Like this:

Like Loading...

Related

Post navigation

Previous: Goðinn vann til verðlauna á Íslandsmóti Skákfélaga

Related Stories

Goðinn 3. sætið í 3. deild mars 2026
  • Fréttir
  • Íslandsmót skákfélaga

Goðinn vann til verðlauna á Íslandsmóti Skákfélaga

Hermann Aðalsteinsson 9. mars, 2026
Vignir Vatnar
  • Fréttir
  • Sel Hótel Open 2026

Skráning byrjar vel á Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl skákmótið – Vignir Vatnar mætir

Hermann Aðalsteinsson 5. mars, 2026
Smári R-open
  • Fréttir
  • Skákæfingar

Smári efstur á skákæfingu

Hermann Aðalsteinsson 4. mars, 2026

Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl Open – Skrá sig til leiks

sel hótel lokaútgáfa ísl

GM Simon Williams fjallar um Afmælismót Goðans 2025

Goðinn / Goðinn Chess Club info

Miðgarður 4 640 Húsavík Iceland
354 8213187 WhatsApp 354 8213187
lyngbrekku@simnet.is
Mondays 20:30-22:30

Tún Aðstaða Goðans á Húsavík

Tún 2
Félagsheimili Goðan heitir Tún, sem er að Miðgarði 4 á Húsavík. Aðstaðan er í kjallaranum í norðurhluta hússins, græna hurðin.

Kappskákstig félagsmanna Goðans

RSS-veita Fréttir af Skák.is

  • Íslandsmót barnaskólasveita 1.-3. bekkur fer fram á laugardaginn – skráningarfrestur rennur út á morgun
  • Fimm efst á öðlingamótinu!
  • Reykjavíkurmótið í skólaskák verður 13. apríl í TR

Ginger GM

https://www.youtube.com/watch?v=iAkCsXSxBmg&t=3812s
  • Rúnar Ísleifsson Skákmeistari Goðans 2010, 2012, 2015, 2019, 2020 og 2023 (gjaldkeri)
  • Smári Sigurðsson Skákmeistari Goðans 2007,2008, 2013, 2022 og 2024
  • Jakob Sævar Sigurðsson Skákmeistari Goðans 2011, 2014, 2021 og 2025
  • Ármann Olgeirsson
    Ármann Olgeirsson Skákmeistari Goðans 2005 og 2006 (heiðursfélagi)
  • Sigurður Daníelsson Skákmeistari Goðans 2016 (látinn)
  • Benedikt Þorri Sigurjónsson Skákmeistari Goðans 2009
  • Baldur Daníelsson Skákmeistari Goðans 2004
  • Hermann Aðalsteinsson formaður Goðans frá 2004. Æfingameistari 2010-11 og 14
  • Sigurður Jón Gunnarsson
  • Sigurbjörn Ásmundsson (ritari)
  • Páll Ágúst Jónsson
  • Oleksandr Matlak
  • Ingi Tandri Traustason
  • Kristján Ingi Smárason Skákmeistari Goðans 2019, 2021 og 2024 U-16
  • Ingi Hafliði Guðjónsson
  • Ævar Ákason Æfingameistari 2013
  • Adam Ferenc Gulyas
  • Bergmann Óli Aðalsteinsson
  • Sighvatur Karlsson
  • Hilmar Freyr Birgisson
  • Adrian Benedicto
  • Benedikt Þór Jóhannsson
  • Lárus Sólberg Guðjónsson
  • Kristijonas Valančiūnas
  • Hannibal Óskar Guðmundsson
  • Tryggvi Þórhallsson Mynd Hallfríður Sigurðardóttir
  • Ingimar Ingimarsson
  • Aðalsteinn Leifs Maríuson
  • Björn Gunnar Jónsson
  • Sigmundur Þorgrímsson. Mynd Hallfríður Sigurðardóttir
  • Ásgeir Magnússon.
  • Dorian Lesman
  • Alfreð Steinmar Hjaltason
  • Jón Aðalsteinn Hermannsson Skákmeistari Goðans u-16 2014
  • Hlynur Snær Viðarsson Æfingameistari 2015
  • Viðar Njáll Hákonarson
  • Olena Tkachuk
  • Óskar Páll Davíðsson
  • Kári Arnór Kárason
  • Adam Płachta
  • Jón Hafsteinn Jóhannsson
  • Ottó Páll Arnarson
  • Agnieszka, Banek
    Agnieszka Banek
  • Magnús Ingi Ásgeirsson
  • Annija Kotleva
  • Roman Juhas
  • Sigurjón Benediktsson
  • Ketill Tryggvason
  • Árni Garðar Helgason
  • Hallur Birkir Reynisson
  • Heimir Bessason
  • Orri Freyr Oddsson
  • Jakub Piotr Statkiewicz
  • Þorgrímur Daníelsson
  • Brandur Þorgrímsson

RSS-veita Sel Hotel Mývatn/Mývatn Öl Open 2026

  • Registration in Sel Hotel / Mývatn Öl chess tournament is off to a good start. GM´s Vignir, Simon, Bragi and Þröstur are registerd
  • Sel Hotel Mývatn/Mývatn Öl open – Registrations opens March 1st
  • “It has already become my favourite tournament”
  • Skák.is
  • Skáksamband Íslands
  • Skákskóli Íslands
  • Skákkennsla.is
  • FIDE
Copyright © All rights reserved. Skákfélagið Goðinn | MoreNews by AF themes.
 

Loading Comments...
 

You must be logged in to post a comment.

    %d