17.12.2013 kl. 16:12
Jólapakkamót GM Hellis fer fram í Ráðhúsinu laugardaginn 21. desember.

Jólapakkaskákmót GM Hellis verður haldið laugardaginn 21. desember nk. í Ráðhúsi Reykjavíkur. Mótið hefst kl. 13 og er ókeypis á mótið. Mótið er fyrir börn og unglinga og fer nú fram í 16. skipti en það var fyrst haldið fyrir jólin 1996. Síðan hefur það verið haldið nánast á hverju ári og hefur alltaf verið eitt fjölmennasta skákmót ársins.
Keppt verður í allt að 5 flokkum: Flokki fæddra 1998-2000, flokki fæddra 2001-2002, flokki fæddra 2003-2004 og flokki fæddra 2005 og síðar og peðaskák fyrir þau yngstu (2007 og yngri). Tefldar verða 5 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma á mann.
Jólapakkar eru í verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum aldursflokki fyrir sig fyrir bæði drengi og stúlkur. Auk þess verður happdrætti um 3 jólapakka í hverjum aldursflokki fyrir sig og sameiginlegt happdrætti í lokin þar sem m.a. verður dregin út spjaldtölva frá Tölvulistanum og allir þátttakendur verða leystir út með góðgæti frá Góu og Andrésblaði. Meðal þeirra fyrirtækja sem leggja til gjafir í jólapakkana eru: Myndform, Salka útgáfa, Sögur útgáfa, Edda útgáfa, Speedo, Nordic
Games, Ferill verkfræðistofa, Veröld útgáfa, Bókabeitan útgáfa, Góa, Heimilistæki, Landsbankinn og Skákskóli Íslands og Skákfélagið GM Hellir.
Skráning á mótið fer fram hér á heimasíðu GM Hellis og er skráningarform efst á síðunni. Einnig er hægt að skrá sig á skák.is. Upplýsingar um skráða keppendur er að finna hér.
