Jólapakkaskákmót Hugins (áður Jólapakkaskákmót Hellis) verður haldið laugardaginn 20. desember nk. í Ráðhúsi Reykjavíkur. Mótið hefst kl. 13 og er ókeypis á mótið. Mótið er fyrir börn og unglinga og fer nú fram í 17. skipti en það var fyrst haldið fyrir jólin 1996. Síðan hefur það verið haldið nánast á hverju ári og hefur alltaf verið eitt fjölmennasta skákmót ársins.
Keppt verður í allt að 6 flokkum: Flokki fæddra 1999-2001, flokki fæddra 2002-2003, flokki fæddra 2004-2005, flokki fæddra 2006-2007 og flokki fæddra 2008 síðar og peðaskák fyrir þau yngstu. Tefldar verða 5 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma á mann. Jólapakkar eru í verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum aldursflokki fyrir sig fyrir bæði drengi og stúlkur. Auk þess verður happdrætti um 3 jólapakka í hverjum aldursflokki fyrir sig. Skráning á mótið mun fara fram hér á skákhuganum.