Kristján Guðmundsson gengur til liðs við Goðann-Máta!

Hinn snjalli skákmeistari Kristján Guðmundsson (2289) hefur gengið til liðs við Goðann-Máta. Vart þarf að orðlengja að félaginu er mikill styrkur í liðsinni svo öflugs og reynds meistara.

Kristján Guðmundsson

 
Kristján hefur um langt árabil verið áberandi í íslensku skáklífi. Hann var á sínum tíma Íslandsmeistari unglinga í skák, var fulltrúi þjóðar sinnar á heimsmeistaramóti unglinga og  fékk 7 vinninga af  9 á World Open í Bandaríkjunum 1982. Sá árangur fleytti honum í efstu sætin á því öfluga móti, mitt í öllum stórmeistarafansinum og hlaut Kristján sérstök verðlaun fyrir frammistöðuna. 
 
 
 
Meðal annarra afreka má nefna að hann hefur unnið Öðlingamót TR nokkrum sinnum, auk sigra í fleiri sterkum mótum, og  varð Íslandsmeistari með TG á Íslandsmóti skákfélaga.
Síðast en ekki síst var Kristján liðsstjóri landsliðs Íslands í skák á fjórum Ólympíumótum í röð, m.a. þegar liðið náði 4. sæti í Dubai og vantaði einungis  ½ vinning til að hreppa bronsið.
 
Hermann Aðalsteinsson, formaður Goðans-Máta: „Þetta er mikil gleðifregn. Kristján fellur ekki bara vel í okkar hóp sem sterkur skákmaður heldur líka sem skemmtilegur félagi. Góður liðsandi skiptir okkur GM-ara nefnilega jafnvel enn meira máli en geta í skák og þar er skemmst að minnast þáttar góðrar stemningar og samheldni í sigri okkar á Íslandsmóti skákfélaga í hraðskák  á dögunum. Þá er heldur ekki amalegt að njóta atfylgis nýja liðsmannsins í herkænsku því að Kristján er eins og kunnugt er doktor í sálfræði. 
Ljóst er að Kristján mun efla enn frekar hina grjóthörðu a-sveit okkar í efstu deild Íslandsmóts skákfélaga sem senn fer í hönd.“
 
Stjórn og liðsmenn Goðans-Máta bjóða Kristján Guðmundsson velkominn í sínar raðir.