Lenka Ptacnikova (2310) vann góðan sigur á Sopiko Guramishvili (2402) frá Georgíu á EM-kvenna sem stendur yfir í Búlgaríu. Lenka er sem stendur í 14-25 sæti (25) með fjóra vinninga þegar sex umferðum er lokið. Lenka mætir Elina Danielian (2458) frá Armeníu í sjöundu umferð á morgun.

Lenka
Lenka

Skákir Lenku á mótinu má skoða hér (Tómas Veigar sló inn)

Alls taka 116 skákkonur frá 26 löndum þátt og þar af flestar sterkustu skákkonur Evrópu. Fjórtán efstu sætin veita keppnisrétt á Heimsbikarmótinu (World Cup) að ári. Lenka er nr. 51 í stigaröð keppenda.