Annarri umferð Meistaramóts Hugins lauk í kvöld með viðureign Snorra Þórs Sigurðssonar og Jóns Eggert Hallsonar, þar sem Snorri stýrði hvítu mönnunum til sigurs, þótt Jón Eggert hafi reynt ýmsar brellur þegar halla tók undan fæti. Búið er að raða í 3. umferð sem tefld verður fimmtudaginn 27. ágúst og hefst kl. 19.30.
Þá mætast á efstu borðum Björn Hólm Birkisson og Einar Hjalti Jensson annars vegar og hins vegar Davíð Kjartansson og Bárður Örn Birkisson. Það er því spurning hverjir hafa betur, ungu meistararnir eða þeir eldri og reyndari. Að auki eru ýmsar athyglisverðar innbyrðis viðureignir á dagskrá.
