Kristján Ingi Smárason. Mynd Hallfríður Sigurðardóttir
Ný skákstig voru gefin út í gær 1. apríl. Kristján Ingi Smárason hækkar um heil 40 stig eftir góðan árangur í seinni hluta íslandsmóts skákfélaga. Ádám Gulyás hækkar líka talsvert eða um 18 stig. Kjartan Ingvarsson hækkar svo um 4 stig. Aðrir félagsmenn standa í stað eða lækka á stigum. Sjá nánar hér.

Athygli vekur að Timothy Murphy sem kom nýr inn á listann 1. febrúar lækkar um 43 stig en hann er gamall félagsmaður og formaður veit ekki hvar hann er staddur í heiminum nú um stundir, en hugsanlega er hann í Valencia á Spáni.
